föstudagur, september 29, 2006

Mannalegur... og alveg eins og pabbi sinn


Sætust




Hrikalega sæt ekki satt...

Er að prófa mig áfram í því að setja inn myndir og svona... Annars er Tótuskottið annsi lúnkin við að taka myndir, setti link á hana. Svo Skora ég á Rúnu að setja inn myndirnar sem hún tók áður en hún fór, að ég held...

Kv. mamman


þriðjudagur, september 26, 2006

Nú er að finna nafn á stubb:)

Jæja þá er það ákveðið,

Það á að skíra litla kall þann 20. október, í ljósi fjölskyldustærðar tekst okkur nú ekki að hafa þetta fámennt. Komast því miður ekki alveg allir... Rúna Skamm skamm að flytja af landi brott og Bogga að vera svona busy;) Lofa að þið fáið nafnið alveg beint í æð þegar verður búið að upplýsa það!

Mömma, Baldur og Gústi koma alveg spes frá Danaveldi til að vera viðstödd og við erum voða spennt að sjá þau öll:)

Nafnið verður leyndó þar til 20. okt en ég vorkenni ykkur ekkert svakalega þar sem þetta er mun styttri bið heldur en þegar Hildur Ósk var skírð....

Annars er litli kútur farinn að fylgja manni með augunum og ég fékk fyrsta brosið frá honum daginn sem hann var 4 vikna:) :) :)

Þið fáið myndir inn á bloggið hjá mér þegar ég kem myndavélamálum í lag og nota bene læri á bloggið sem eins og þið sjáið er mjög frumstætt og fátæklegt...

Jæja nóg í bili

Kveðja
Lísa

föstudagur, september 22, 2006

Að vera "maður með mönnum"

Sæl,

Einhver ónefndur skaut því að mér að ég væri búin að missa kúlið þar sem ég bloggaði ekki???
Án þess að ég sé að láta undan þrýstingi þá er jú hálf famelían flutt erlendis og og hinn helmingurinn búsettur norðan heiða svo ég ætla að láta á þetta reyna... En sýnið mér skilning ég er ekki tæknivæddasta kona í heimi svo ég veit að lúkkið á síðunni verður frekar dapurt amk til að byrja með...

Here I come:)

Lísa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?