mánudagur, október 23, 2006

Bjarki Freyr tveggja mánaða og Ásta 23ja:)




Bjarki Freyr 2ja mánaða í dag, ótrúlegt hvað tíminn líður!
Svo á Ásta Mjöll afmæli, til hamingju með afmælið.

Í Sumar "Blásikúlur"















Efnisorð:


laugardagur, október 21, 2006

Stolnar myndir :)


Myndir frá tótuskottinu... sjá link inn á hana komnar myndir

Bjarki Freyr :)



Allir í góðum gír ...

Litla Stóra fjölskyldan...


;)Skírnardagurinn hans Bjarka Freys var virkilega vel heppnaður. Veitingar A'la mamma svaka góðar. Þúsund kossar mamma:) Svo fékk litli snúður... HEMM HEMM: Bjarki Freyr alveg ótrúlega mikið af fallegum gjöfum. Ég var bara nokkuð ánægð með prestinn hann Sr. Bolla Pétur Bollason, falleg athöfn og ekkert minnst á syndina... svo ég eyði nú ekki meir orðum um það.
Stóru systkinin alveg eins og ljós á meðan athöfninni stóð og héldust meira að segja í hendur, voða sæt og krúttleg;) grínuðust svo hvort í öðru á eftir:) eins og sjá má á myndunum hér að ofan (nb. þarf að læra hvernig maður setur inn myndir í röð og inn í textann og svona;))
Takk takk fyrir allar fallegu gjafirnar sem Bjarki Freyr fékk og líka fyrir Hildi Ósk og Dag:)
Líka gaman að hitta fólkið sitt svona saman komið. Vantaði bara Boggu og Rúnu stórt knús til ykkar frá okkur...
Takk líka Gugga og Óskar að taka eldri gríslingana í pössun í gær, gaman fyrir þau og þægilegt fyrir okkur að vera heima í kotinu með Bjarka Frey sem var eins og engill á meðan mamma og amma stússuðust fyrir skírnina og lét bara rétt í sér heyra á meðan hann var skírður. Hver vill svo sem láta skvetta á sig vatni...
Það er annars dálítið gaman að Hildi Ósk þessa dagana. Hún kom með mér að hitta prestinn á miðvikudaginn og ég var búin að útskýra fyrir henni að við værum að fara að hitta prest sem myndi skíra litla bróður: " Nei ekki skera litla bróður" sagði hún og var ekki sátt við þessa tilhögun hjá móður sinni! "Nei nei skíra Hildur ekki skera" presturinn ætlar að gefa litla bróður nafn". Hún sættist á þetta treglega en var í hinu besta skapi og hrópaði svo upp yfir sig þegar ég sagði að við værum komin í kirkjuna: "Nafnahúsið, við komin í nafnahúsið" ;)
Jæja Bjarki Freyr er ekki sáttur við þetta skrifæði í mömmu sinni, skrifa meira síðar treysti líka á að hún tóta systir hafi tekið fullt af myndum. vantar af myndir sem teknar voru af pabba og hrólfi því hrólfur tók á mína vél.
Hér er linkur inn á nýju myndasíðuna mína
adios
lisa og gríslingarnir 3

miðvikudagur, október 18, 2006

Tíminn flýgur...


Sælt veri fólkið...

* Í dag er stubburinn 8 vikna
*
* Tveirr dagar í skírn
* myndavélin fékk straum sem dugir í 90 mín... Myndir á meðan:)

* Myndasíða í undirbúningi:
http://lisaljosalfur.spaces.live.com/ örfáar myndir komnar inn.

* Skírn í undirbúiningi svo nú verður ekki meira bloggað...
Knús
L

mánudagur, október 02, 2006

Þreytta konan ;)

Sælt veri fólkið...
Við komum frekar þreytt "undan" helginni. Hildur veik föstudag og laugardag og litli kall óvær, nú veit ég að ég ætla barsta alls ekki að hætta með Hildi á leikskólanum... Ekki að það hafi nokkurn tíman verið ætlunin. Veit samt NÚNA hvernig það væri að vera einstæð tveggja barna móðir (Sævar í vinnunni sko) ... Gæti það barasta alveg en heimili mitt væri þá langt frá því að vera glansandi. HEMM HEMM eins og það er alltaf NO comments ;)

Þetta reddast alltaf einhvern veginn, þvottarnir settir á hold en í stað þess sorteraði ég dótið í ruslastíunni hennar Hildar svo úr varð herbergi á nýjan leik og svo sungum við Dansi dansi dúkkan mín og kubbuðum og lituðum heil ósköp. Erfiðast finnst henni að skilja að litli bróðir þyrfti að trufla þessa skemmtun okkar en hún er bara góð við hann samt. Soldið klunnaleg hún litla skessan mín þegar hún faðmar mig og litli bróðir einhversstaðar á milli í fanginu á mér.

Greyið litla er svo kvefuð að hún er komin með sár við nasirnar. Litli bróðir er líka búinn að fá góðan skammt af horugum kossum en til allrar hamingju er hann ekki búinn að smitast enn þá.

Jæja við fórum svo í afmæli til Guðrúnar Birtu frænku á Sunnudaginn þannig að við mygluðum ekki alveg. Hildur fann jólakjólinn frá því í fyrra og varð himinn lifandi að eiga svona flottan prinsessukjól. Svo flottur var hann að Stóri bróðir varð hálf skúffaður og spurði af hverju Hildur fengi að fara í búning í afmælið!!! Þetta var leiðrétt snögglega enda var hugur hans pottþétt hjá sjóræningjabúningnum sem hann á heima. EKki viss um að Guðrún Birta hafi boðið sjóræningum í afmælið.

Hildur fór svo á leiksskólann í morgun. Ég sótti hana í hádeginu þar sem hún fór svo seint að sofa og líka af því að ég vildi ekki að litla hornösin mín færi út að leika eftir hádegi. Sú var himinlifandi og talaði um það lon og don að hvað mamma væri góð að koma snemma að sækja sig. Kannski að ég sæki hana bara kl. 14:00 næstu daga sjáum til hvernig litli kall verður við mömmu sína.

Svo var svaka spenningur eftir matinn því Sævar var að lakka gamla rúmið hans Dags en það fer inn til Hildar. Hildur ætlaði helst að sofa í því og það þurfti dálítinn tíma til að koma henni í skilning um það að það væri ekki hægt að sofa í nýmáluðu rúmi án dýnu! Mjög jákvætt að hún sé svona spennt því þá verður auðveldara að venja hana að sofa í eigin herbergi. Jesús minn litlan mín að sofa ein...

Jæja nóg í bili
Lísa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?