miðvikudagur, febrúar 28, 2007
Ammæli
Óðinn hennar Esterar á afmæli 29. febrúar svo ég ætla að nota tækifærið og óska þeim mæðginum til hamingju með afmælið í dag frekar en á morgun.
Til hamingju:)
afmælisknús og kossar
Lísa og kjúklingar (rímar við sjúklíngar)
Til hamingju:)
afmælisknús og kossar
Lísa og kjúklingar (rímar við sjúklíngar)
Engar fréttir eru góðar fréttir
Hæ sá stutti er hitalaus og allur að hressast. Hann lærir eitthvað nýtt á hverjum degi. Nýjast er að frussa. Lærði það reyndar fyrir löngu síðan en var að uppgötva að það er langskemmtilegast þegar það er grautur upp í manni. Ó já nú fer ekkert innum varir barnsins öðruvísi en að rata út aftur með tilheyrandi frussi:(. Móðir hans er ekki sátt, hélt kannski að hann væri orðinn leiður á grautnum en það er sama sagan með allt sem ég bíð honum. Perumauk, gulrætur, apríkósur annar grautur... Er bara ráðþrota. Svo skríkir hann þegar hann sér brjóstið og fær sér sjúss. Full ungur til að fara að stjórna HA
Skál Lísa
þriðjudagur, febrúar 27, 2007
Hildur kjútípæja
Skyldublogg
Hæ hér er heilsan öll að koma til, litli stúfur hressari í dag bara með nokkrar kommur. Lítill svefn í nótt en meiri en dagana á undan:)
Ekkert annað að frétta
Knús lísa
Ekkert annað að frétta
Knús lísa
mánudagur, febrúar 26, 2007
Rapport
Bjarki litli er ósköp lasinn en heldur sinni léttu lund samt nokkurn veginn. Er eiginlega bara erfiður á nóttunni en þá er sofið í ca. 20-30 mín á milli þess sem sárt er grátið, greyið. Samkvæmt doktornum er þetta líklega inflúensan sem Hildur var með.
Fengum annars góðar heimsóknir í dag... Bjarki var svaka hrifinn af Urði sem þótti hann þó full ágengur;) Óðinn lék líka helling við Bjarka sem var alveg svakalega feginn að sjá fleiri andlit en móður sína. Alveg svakalega velheppnuð eintök börnin hennar Esterar:)
Bjarki er líka mjög skotinn í Önnu Maríu vinkonu og hafði alls engan tíma til að borða í hádeginu fyrir henni;)
Þar til seinna
Adios
Lísa
laugardagur, febrúar 24, 2007
Svekkelsi
Hildur er hitalaus í dag og ég sá fram á náðugri daga, sérstaklega þar sem ég er að fara í próf næsta föstudag. Nei nei litil kall er núna með yfir 39, þar fór það að láta hann sofa í vagninum dem:(
Sorry ég hef ekkert að segja enda orðin alveg mygluð í gegn af inniveru.
Knús og kossar
Lísa
Sorry ég hef ekkert að segja enda orðin alveg mygluð í gegn af inniveru.
Knús og kossar
Lísa
föstudagur, febrúar 23, 2007
Smá myndasyrpa
Bjarki sex mánaða :)
Annars er hann sex mánaða í dag þessi elska.... Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
Og kúturinn:)
Lítill lasarus
Solla lasna
Það var ekki laust við að sumir væru feimnir sem solla:) Hún var voða stolt en hafði áhyggjur af því að Sollu vantaði bráðum búninginn sinn aftur;).
Eftir skemmtilegan dag fór Solla að verða úrill og pirruð og í morgun var hún aftur komin með hita. Sem betur fer bara 38. Mamman var kannski of fljót að hleypa henni út. Tökum ekki feiri sjénsa og verðum heima fram yfir helgi
þriðjudagur, febrúar 20, 2007
Hey Jude
Var að upgötva að ég ætti eiginlega að vera pínu abbó út í systkini mín.
Rúna flakkar um heiminn.
Baldur er á skíðum í Frakklandi
og síðast en ekki síst.
Tóta fær koss frá Jude Law...
Er það samt ekki... Knús til ykkar allra :)
Svo má ekki gleyma að Hróbblarinn verður 15 a morgun þessi elska:O) Alveg fáránlegt að drengurinn "litli" stefni hraðbyr í að verða fullorðinn.
Bé í bili
Lísa
Rúna flakkar um heiminn.
Baldur er á skíðum í Frakklandi
og síðast en ekki síst.
Tóta fær koss frá Jude Law...
Er það samt ekki... Knús til ykkar allra :)
Svo má ekki gleyma að Hróbblarinn verður 15 a morgun þessi elska:O) Alveg fáránlegt að drengurinn "litli" stefni hraðbyr í að verða fullorðinn.
Bé í bili
Lísa
Þegar börnin fara að kenna manni
Hildur vill ekki borða kjötið sitt
"Fátæku börnin í Afríku fá ekkert kjöt og eru svöng "
"Ég veit" segir svo með spurnarsvip "mannst ekki við gáfum þeim pening?!" Brosir sæl yfir þessu og vill ekkert frekar borða matinn sinn...
............ Fróðleikur dagsins: Börn eru með stálminni og mig vantar nýjan leiðavísi með dóttur minni.
PS. Eftir 40,5 stiga hita í gær er mín hitalaus og búin að sofa of mikið í dag þannig að eitthvað verður erfitt að koma þeirri stuttu í háttinn
sunnudagur, febrúar 18, 2007
Sunnudagur
Þriðji dagurinn í hita hjá Hildi Ósk. Voða spræk, alls ekki týpan til að liggja og sofa þó hún sé með 39 stiga hita... Já hún er ótrúleg...
Úbbs verð að stökkva framhald síðar;)
Úbbs verð að stökkva framhald síðar;)
laugardagur, febrúar 17, 2007
Pestarbæli sequence no. 2
Jæja
Af okkur er það að frétta að Bjarki er enn með í eyrunum. Sævar hóstar blóði og Hildur er með 39 stiga hita.... FJÖRIÐ...
Og ...Hildur Ósk ætlar að vera Bósi-Ljósár og Solla stirða á öskudaginn helst á sama tíma;)
Það er á stefnuskrá minni að sofa næstu viku..
Amk eitthvað á nóttunni
Og.. borða súkkulaði
Ekki fara í ræktina
og humm borða fullt af bollum
Hverju er verið að troða í mig?
fimmtudagur, febrúar 15, 2007
Snúllurnar mínar:)
mánudagur, febrúar 12, 2007
Kúturinn
Litli broskallinn minn er víst með í eyrunum... Það útskýrir óværðina sem gat nú líka verið út af kvefinu. Sefur stutt í einu en er ótrúlega góður.
Svo er hann byrjaður í aðlögun, Drífa sem passaði Hildi verður með hann þannig að ég veit að hann verður í mjög góðum höndum:)
Hildur virðist aðeins meira abbó þessa dagana, held að það tengist því að ég hef þurft að hafa meira fyrir Bjarka en venjulega.
Jæja nú verður eitthvað fréttnæmt að fara að gerast í mínu lífi svo fólk nenni að lesa bloggið mitt.
Sendi annars knús og kossa frá Hildi Ósk og Bjarka Frey til allra "ammanna", afanna og Rúnu heimshornaflakkara:)
þriðjudagur, febrúar 06, 2007
Buhu
Kveðja hér úr kvef og pestarbæli...
Er að farast úr kvefi og hita og rollingarnir mínir líka... Ekki gaman. Sit hér kl. 2:49 að leggja lokahönd á yndislega greiningarskýrslu fyrir skólann. Fer bráðum að gera eitthvað undarlegt af mér í svefngalsanum sem orsakast af mikilli þreytu, sárum hálsi og ofurleiða á verkefninu sem ég er allllveg að fara að klára:)
Annars er svo gaman af henni Hildi þessa dagana hún er svo rosalega kurteis inn á milli þess sem hún skessast að stundum verð ég alveg hissa.
Jæja that's all folks
Er að farast úr kvefi og hita og rollingarnir mínir líka... Ekki gaman. Sit hér kl. 2:49 að leggja lokahönd á yndislega greiningarskýrslu fyrir skólann. Fer bráðum að gera eitthvað undarlegt af mér í svefngalsanum sem orsakast af mikilli þreytu, sárum hálsi og ofurleiða á verkefninu sem ég er allllveg að fara að klára:)
Annars er svo gaman af henni Hildi þessa dagana hún er svo rosalega kurteis inn á milli þess sem hún skessast að stundum verð ég alveg hissa.
Jæja that's all folks



