fimmtudagur, apríl 26, 2007

Barnablogg

Nú Bjarki Freyr er loksins farinn að velta sér almennilega og fer nú sinna ferða ýmist afturábak eða á rúllinu. Drengurinn er hættur að rymja eins mikið og farinn að babla heilan helling. Enda orðinn átta mánaða! Byrjaði fyrir alvöru fyrir tveimur vikum og þá kom runan af dada, baba, aaaa og svo heyrst einstaka sinnum mamama:) Gómurinn er að gera greyið alveg ómulegan en mér sýnist að það séu tvær tennur á leiðinni í neðri góm. Enda ræðst greyið á hvað sem fyrir verður og reynir að naga það.

Hér er Hildur á sama aldri, einmitt nýbúin að fá fyrstu tönnsluna. Takið eftir litla gulrótarnebbanum:)

Og hún Hildur


miðvikudagur, apríl 25, 2007


Gormurinn


mánudagur, apríl 23, 2007



Rúna sæta kom í heimsókn og við kíktum í kringluna;) Stal þessum myndum einmitt frá henni he he.








þriðjudagur, apríl 10, 2007

Spenna spenna...

Jæja það var fjárfest í "forláta" símtæki í gær. Þannig að þegar gripurinn er vel spenntur ;) (full hlaðinn), ætti að vera hægt að hringja í heimasíman á þessu heimili ( eftir kvöldmat). Nú er bara að bíða og sjá því þetta er 3ja eða fjórða símtækið sem keypt er á ekki löngum tíma. Vona að þetta séu ekki álög á heimilinu.

Svo átti ég líka eftir að óska öllum gleðilegra páska, var engan vegin að standa mig í því að hafa samband þessa páska. Krakkarnir tóku þetta nefnilega með trompi og tóku með í farteskinu þessa svæsnu maga og gubbupest. Hildur byrjaði daginn áður en við héldum út og svo tók Bjarki við. Án þess að ég komi með geðslegar lýsingar þá hef ég aldrei vitað annað eins ógeð margra daga pest ogsvo fylgir þessu hár hiti líka oj bara. Glæsilegt að fá svona heimsókn en þegar við Héldum heim á leið í gær vorum við búin að smita alla fjölskylduna...

Jæja verð að fara að gera eitthvað að viti


This page is powered by Blogger. Isn't yours?