mánudagur, desember 08, 2008
Piparkökubakstur:)
sunnudagur, ágúst 24, 2008
Myndir 2008
Linkaði á myndasíðu - Sama lykil orð og á hinum myndasíðunum. Annars bara senda mér mail
Lísan
Lísan
laugardagur, ágúst 23, 2008
Bjarki 2ja ára og latabæjarhlaup

Þau fóru svo í latabæjarhlaupið og hittu Óskar Mána. Signý tók þessar óborganlegu mynd af Bjarka eftir hlaupið... eiginlega svona Palli er einn í heiminum mynd;)
Svo hittu vinakornin celebrity no 1 ... Voru alveg bergnumin yfir idolinu. Bjarki lét sér fátt um finnast, Skoppa og skrítla meira hans deild enn sem komið er:)
.....
Að lokum komin í mark með medalíur og allt:)
sunnudagur, júlí 06, 2008
Flottur hópur og svo...........................................................Þessi mynd er kostuleg:)
mánudagur, maí 12, 2008
Daman 4ra ára í dag:)
Jæja litla stelpan mín bara 4ra ára í dag:)
Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! mamman að fara í síðasta prófið á morgun svo ekki var haldin "fermingarveisla" í dag (reyndar slagar hlaðborðið hjá mömmu alltaf upp í eina slíka;) Takk mamma:))
Ennn...daman fékk dúkku með læknadóti sem var efst á óskalistanum, falleg sumarföt og helló kittý kökuna sem ég plataði Jóa fel til að baka;) Amma Sigga hélt uppi heiðri móðurinnar og stóð fyrir fjölskylduafmæli svo skottan var vel sátt;) Reyndar vorum við rukkuð um krakkaafmæli en það verður fljótlega þe. þegar að móðirin stígur upp úr skruddunum.
Knús og kossar
L
En skelli inn einni mynd af dömunni, Þessi var tekin um jólin en kannski að ég reyni að skella upp nýrri myndasíðu við tækifærið, makkinn minn og ég erum bara ekki alveg sátt þegar kemur að því að færa myndir yfir á netið.... Stendur til bóta EFTIR PRÓF eins og svo margt;)
miðvikudagur, febrúar 13, 2008
Look-alike Meter
Hildur meira eins og mamma sin hí hí vissi það svo sem;)
sunnudagur, nóvember 25, 2007
Senn koma próf nei ég meina jól...
En þvílík verkefnasúpa á þessari önn! Flest hafa verið unnin í skjóli nætur og undir miklum skorti á tíma. En með ómældri hjálp frá henni móður minni (lov jú) Er ánægðust með uppskeruna... Hef ekki enn fengið einkunn sem ég skammast mín fyrir er meira að segja bara nokkuð roggin:) :) :)
Kveð í bil
laugardagur, september 29, 2007
Litill Astu&Eyvason fæddur

Lítill frændi fæddist þann 25. sept 47 cm og 10 merkur... Ótrúlega fallegur litli maðurinn:)
Til hamingju Ásta og Eyvi
þriðjudagur, september 04, 2007
Confession of a desperate Housw...
ég ætla að koma með smá játningu... Nú er fæðingarorlofinu mínu formlega lokið og við tekur spennandi já ég sagði spennandi skólavetur. Það er nú þannig að þegar foreldri er heim með hvítvoðung þá vill oft vera kveikt á sjónvarpinu á morgnana. Þegar fægðingarorlofið mitt hófst var einmitt verið að sýna spænska "gæða" þætti sem heita Feita bollan eða eitthvað svoleiðis. Ég hneykslaðist mikið yfir þessum þáttum enda rugl hið mesta og nóg að horfa á 20.asta hvern þátt og samt halda söguþræðinum. Þó fór svo að þar sem um ótrúlega farsakenndan söguþráð var að ræða að mín fór að horfa á þetta í laumi enda hálf skammarlegt að festast í ýktri útgáfu af Bold and Beautiful á spænsku. Reyndar sveiflaðist ég á milli þess að láta þættina fara rosalega í taugarnar á mér og geta ekki misst af þeim. Svo rann sápan sitt skeið og ný hófst sem bar heitið Ser Bonita No Basta og var enn lummulegri en fyrri sápa. En fyndna við þetta er að ég datt barasta algjörlega inn í ræmuna þó ég gréti ekkert yfir því að missa af þætti. Kannski að ástæðan fyrir áhuga manns á þessu er að þessir þættir eru afturhvarf til svona ást og afbrot söguþráðar þe. elskendur sem ná aldrei saman vegna óendanlegs miskilnings og illsku fólks í kring um saklausa (og heimska) parið. Svo er líka tónlistin kapituli útaf fyrir sig... En jæja ég er að minnsta kosti glöð að nú hefur sú sápa líka runnið sitt skeið og ný Spænsk sápa byrjuð handa einhverjum öðrum nýbökuðum mæðrum... Einmitt samsuða af leikurunum úr báðum sápum... En mikið er ég glöð að ég er bara ekki að detta inn í þráðinn enda brjóstagjöf og fæðingarorlof runnið sitt skeið....
Nú þarf ég bara að passa mig að slá ekki um mig með spænskum frösum he he.... "Caramba"
Nú þarf ég bara að passa mig að slá ekki um mig með spænskum frösum he he.... "Caramba"
Byrjar fjörið...
Mannekla á leiksskólanum hans Bjarka vegna veikinda þannig að ég þarf að sækja hann í hádeginu. Verð að viðurkenna að ég fæ nettan kvíðahroll... Virðist vera árvisst ástand. Veikindi eru auðvitað eitthvað sem ekki er hægt að sjá fyrir... Það er amk ekki undirmannað á leiksskólanum svo ég segi bara 7 9 13 og vonandi gengur þetta hratt yfir
Bé
Lísa
Bé
Lísa
Og svo kom bjarki
Hildur Ósk: Mamma veistu Ásta er með barn í maganum!
Mamman: já lítið kríli:)
Mamman: Mannstu þegar mamma var með kúlu?
Hildur Ósk: ég veit mamma, brosir og segir glöð:, fórst upp á spítala ... og svo kom Bjarki kom út um naflann!
Mamman: Ha umm eða eitthvað svoleiðis...
Mamman: já lítið kríli:)
Mamman: Mannstu þegar mamma var með kúlu?
Hildur Ósk: ég veit mamma, brosir og segir glöð:, fórst upp á spítala ... og svo kom Bjarki kom út um naflann!
Mamman: Ha umm eða eitthvað svoleiðis...
mánudagur, september 03, 2007
Jæja skólinn byrjaður...

Nett tilhlökkun yfir því að taka plastið utan af bókunum og byrja að lesa:) Líka æðisleg tilfinning að vera loksins að sjá fyrir endan á náminu mínu. Svei mér ef tilhugsunin gefur mér ekki bara dálítið auka orku"búst". Smá stress samt þar sem ég er ekki alveg búin að negla niður BS-verkefnið mitt. Stressið er nú nauðsynleg forsenda þess að ég hespi þessu af ekki satt?

Ég reyndi að vera súpermom í morgun.... Það tókst ekki. Heimilisfaðirinn erlendis og... það er ekki möguleiki (fyrir mig amk.) að koma tveimur leiksskólagemlingum á tvo leiksskóla fyrir klukkan 9. Sérstaklega þegar yngri strumpurinn vakti í nótt og ákvað mér að óvöru að sofa síðan alveg til kl. 8. Vanalega er stuðboltinn viljugur að fara á fætur kl. 6. Nú hefði þessi auka svefn, undir öðrum kringumstæðum, valdið mér mikilli gleði. En þar sem ég var ein á ferð og fyrsti tíminn byrjaði 8.20 var þetta ekki alveg að ganga upp.
Ég var svo ekki mætt upp í skóla fyrr en 9:30 og tíminn sem ég átti að mæta í bara búinn... Átti að vera alveg til 11:30 sko.
Það er gaman að segja frá því að fyrrnefndur tími er einmitt verkefnastjórnun;) Ekki nema von að ég sé klukkutíma að koma ormunum mínum út þegar ég er ekki enn búin að læra að besta það hversu fljótt ég kem Hildi í fötin eða hversu lengi ég get verið að mála mig án þess að Bjarki misþyrmi blóminu í forstofunni;) Kannski að lausnin sé að gera þarfagreiningu og jafnvel setja ferlið upp í project....
Amk þarf að kaupa nýja vekjaraklukku .... þarf ekki að læra á MS project til að gera það!
Eða hvað;)

fimmtudagur, ágúst 30, 2007
bloggleysi aka andleysi
Jæja tíminn flýgur, alveg ótrúlegt að það skuli vera rúmt ár síðan að Bjarki ákvað að koma í einum hvelli í heiminn. Ester! er þér alveg ævivarandi þakklát að hafa verið á staðnum og skipa mér að koma mér upp á deild. Gleymi heldur ekki áhyggjusvipnum á Sævari þegar ég þurfti að leggjast á gólfið í forstofunni ;) Nota Bene guttinn kominn í heiminn ca. 40 mínútum seinna!
Nú er Bjarki orðinn leiksskólastrákur og 7 9 13 ekki fengið eyrnabólgu síðan rörin voru sett 20. júní:) Hins vegar er hann að gera okkur gráhærð á nóttunni með tilheyrandi veseni og brölti. Ekki mikil gleði yfir "sólargeislanum" þegar hann vakti á milli okkar frá 3-6 í nótt. Svo er ég bara að vona að hann komist fljótt inn á Hof því það væri snilld að fara með börnin á sama stað til tilbreytingar....
Jæja meira verður það ekki í bili.....
Nú er Bjarki orðinn leiksskólastrákur og 7 9 13 ekki fengið eyrnabólgu síðan rörin voru sett 20. júní:) Hins vegar er hann að gera okkur gráhærð á nóttunni með tilheyrandi veseni og brölti. Ekki mikil gleði yfir "sólargeislanum" þegar hann vakti á milli okkar frá 3-6 í nótt. Svo er ég bara að vona að hann komist fljótt inn á Hof því það væri snilld að fara með börnin á sama stað til tilbreytingar....
Jæja meira verður það ekki í bili.....



