mánudagur, september 03, 2007

Jæja skólinn byrjaður...




Nett tilhlökkun yfir því að taka plastið utan af bókunum og byrja að lesa:) Líka æðisleg tilfinning að vera loksins að sjá fyrir endan á náminu mínu. Svei mér ef tilhugsunin gefur mér ekki bara dálítið auka orku"búst". Smá stress samt þar sem ég er ekki alveg búin að negla niður BS-verkefnið mitt. Stressið er nú nauðsynleg forsenda þess að ég hespi þessu af ekki satt?



Ég reyndi að vera súpermom í morgun.... Það tókst ekki. Heimilisfaðirinn erlendis og... það er ekki möguleiki (fyrir mig amk.) að koma tveimur leiksskólagemlingum á tvo leiksskóla fyrir klukkan 9. Sérstaklega þegar yngri strumpurinn vakti í nótt og ákvað mér að óvöru að sofa síðan alveg til kl. 8. Vanalega er stuðboltinn viljugur að fara á fætur kl. 6. Nú hefði þessi auka svefn, undir öðrum kringumstæðum, valdið mér mikilli gleði. En þar sem ég var ein á ferð og fyrsti tíminn byrjaði 8.20 var þetta ekki alveg að ganga upp.

Ég var svo ekki mætt upp í skóla fyrr en 9:30 og tíminn sem ég átti að mæta í bara búinn... Átti að vera alveg til 11:30 sko.

Það er gaman að segja frá því að fyrrnefndur tími er einmitt verkefnastjórnun;) Ekki nema von að ég sé klukkutíma að koma ormunum mínum út þegar ég er ekki enn búin að læra að besta það hversu fljótt ég kem Hildi í fötin eða hversu lengi ég get verið að mála mig án þess að Bjarki misþyrmi blóminu í forstofunni;) Kannski að lausnin sé að gera þarfagreiningu og jafnvel setja ferlið upp í project....

Amk þarf að kaupa nýja vekjaraklukku .... þarf ekki að læra á MS project til að gera það!


Eða hvað;)


Comments: Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?