mánudagur, október 02, 2006

Þreytta konan ;)

Sælt veri fólkið...
Við komum frekar þreytt "undan" helginni. Hildur veik föstudag og laugardag og litli kall óvær, nú veit ég að ég ætla barsta alls ekki að hætta með Hildi á leikskólanum... Ekki að það hafi nokkurn tíman verið ætlunin. Veit samt NÚNA hvernig það væri að vera einstæð tveggja barna móðir (Sævar í vinnunni sko) ... Gæti það barasta alveg en heimili mitt væri þá langt frá því að vera glansandi. HEMM HEMM eins og það er alltaf NO comments ;)

Þetta reddast alltaf einhvern veginn, þvottarnir settir á hold en í stað þess sorteraði ég dótið í ruslastíunni hennar Hildar svo úr varð herbergi á nýjan leik og svo sungum við Dansi dansi dúkkan mín og kubbuðum og lituðum heil ósköp. Erfiðast finnst henni að skilja að litli bróðir þyrfti að trufla þessa skemmtun okkar en hún er bara góð við hann samt. Soldið klunnaleg hún litla skessan mín þegar hún faðmar mig og litli bróðir einhversstaðar á milli í fanginu á mér.

Greyið litla er svo kvefuð að hún er komin með sár við nasirnar. Litli bróðir er líka búinn að fá góðan skammt af horugum kossum en til allrar hamingju er hann ekki búinn að smitast enn þá.

Jæja við fórum svo í afmæli til Guðrúnar Birtu frænku á Sunnudaginn þannig að við mygluðum ekki alveg. Hildur fann jólakjólinn frá því í fyrra og varð himinn lifandi að eiga svona flottan prinsessukjól. Svo flottur var hann að Stóri bróðir varð hálf skúffaður og spurði af hverju Hildur fengi að fara í búning í afmælið!!! Þetta var leiðrétt snögglega enda var hugur hans pottþétt hjá sjóræningjabúningnum sem hann á heima. EKki viss um að Guðrún Birta hafi boðið sjóræningum í afmælið.

Hildur fór svo á leiksskólann í morgun. Ég sótti hana í hádeginu þar sem hún fór svo seint að sofa og líka af því að ég vildi ekki að litla hornösin mín færi út að leika eftir hádegi. Sú var himinlifandi og talaði um það lon og don að hvað mamma væri góð að koma snemma að sækja sig. Kannski að ég sæki hana bara kl. 14:00 næstu daga sjáum til hvernig litli kall verður við mömmu sína.

Svo var svaka spenningur eftir matinn því Sævar var að lakka gamla rúmið hans Dags en það fer inn til Hildar. Hildur ætlaði helst að sofa í því og það þurfti dálítinn tíma til að koma henni í skilning um það að það væri ekki hægt að sofa í nýmáluðu rúmi án dýnu! Mjög jákvætt að hún sé svona spennt því þá verður auðveldara að venja hana að sofa í eigin herbergi. Jesús minn litlan mín að sofa ein...

Jæja nóg í bili
Lísa

Comments:
vona að ástandið sé skárra eftir helgina, ertu búin að fá prest? viltu að ég ath hvort Ragna Þóra má vera að skreyta fyrir okkur eina skírnartertu?
 
Já ekki slæm hugmynd það... væri alveg frábært ef þú tékkað á henni, var mjög ánægð með útkomuna síðast:)

Knús Lísa
 
Ég er farin að hlakka svo til að vita nafnið á stubbs :)
Annars er bannað að byrja að blogga og svo bara hætta strax... fleiri myndir :)
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?