mánudagur, febrúar 12, 2007
Kúturinn
Litli broskallinn minn er víst með í eyrunum... Það útskýrir óværðina sem gat nú líka verið út af kvefinu. Sefur stutt í einu en er ótrúlega góður.
Svo er hann byrjaður í aðlögun, Drífa sem passaði Hildi verður með hann þannig að ég veit að hann verður í mjög góðum höndum:)
Hildur virðist aðeins meira abbó þessa dagana, held að það tengist því að ég hef þurft að hafa meira fyrir Bjarka en venjulega.
Jæja nú verður eitthvað fréttnæmt að fara að gerast í mínu lífi svo fólk nenni að lesa bloggið mitt.
Sendi annars knús og kossa frá Hildi Ósk og Bjarka Frey til allra "ammanna", afanna og Rúnu heimshornaflakkara:)

