þriðjudagur, apríl 10, 2007
Spenna spenna...
Jæja það var fjárfest í "forláta" símtæki í gær. Þannig að þegar gripurinn er vel spenntur ;) (full hlaðinn), ætti að vera hægt að hringja í heimasíman á þessu heimili ( eftir kvöldmat). Nú er bara að bíða og sjá því þetta er 3ja eða fjórða símtækið sem keypt er á ekki löngum tíma. Vona að þetta séu ekki álög á heimilinu.
Svo átti ég líka eftir að óska öllum gleðilegra páska, var engan vegin að standa mig í því að hafa samband þessa páska. Krakkarnir tóku þetta nefnilega með trompi og tóku með í farteskinu þessa svæsnu maga og gubbupest. Hildur byrjaði daginn áður en við héldum út og svo tók Bjarki við. Án þess að ég komi með geðslegar lýsingar þá hef ég aldrei vitað annað eins ógeð margra daga pest ogsvo fylgir þessu hár hiti líka oj bara. Glæsilegt að fá svona heimsókn en þegar við Héldum heim á leið í gær vorum við búin að smita alla fjölskylduna...
Jæja verð að fara að gera eitthvað að viti
bé

Comments:
<< Home
æ! snúllan mín! Þessi veikindi hljóta að fara að hætta! Það getur bara ekki komið meira, þið eruð búin að fá allt sem hægt er að fá!
knús elskan mín :)
kv. Ester
knús elskan mín :)
kv. Ester
Já þetta er orðið nokkuð gott... Svo má líta á björtu hliðarnar, betra er að vera með veik börn í DK en að hanga heima:)
Lísa
Skrifa ummæli
Lísa
<< Home