þriðjudagur, desember 12, 2006
Jólahvað
Persónur og leikendur: Mamman og Hildur Ósk
Hildur vill ekki klæða sig né fara á leikskólann, mamman sér sér leik á borði að nota jólasveininn.
Mamman: "jólasveinninn er að fylgjast með og gefur óþekkum krökkum kartöflu í skóinn!"
Hildur Ósk: vei (og brosir út að eyrum)
mamman: hún er sko hrá
Hildur Ósk: Já... sjóð´ana og og líka kjöt ;) (enn ánægðari)
HUmmm... minnir óneitanlega á eina náskylda Hildi... Henni fannst jólasveinninn vitlaus á sínum tíma að gefa henni hráa kartölfu og sagði þessa fleygu setningu: "Af hverju gaf hann mér ekki bara franskar?" Fyrsti stafurinn er Tóta...
Skrýtið hvað þessar elskur eru farnar að spá og spekúlera í lífinu:
Hildur fékk að sitja ofan í kerrunni í dag í Íkea gegn því að sitja allan tímann ( stóru kerrurnar sem eru líka fyrir barnastól). Fyrst ætlaði hún ekki að hlýða og vildi standa því var útskýrt fyrir henni að hún gæti dottið... "Já mamma og dáið" sagði hún með sorgartón í röddu. Útskýrði fyrir henni hvað ég yrði sorgmædd og þess vegna ætti hún að passa sig og bara sitja. Svona hálftíma seinna segir hún við mig alvarleg og var greinilega búin að hugsa mikið " mamma ég er ekki dáin, ég skal knúsa þig þú ekki vera leið.....Undarlegt að heyra svona frá litlu snúllunni sinni, svo lítil en samt svo stór.
Well kveð í bili
Lísa
13 dagar til jóla...

Comments:
<< Home
hahaha, ég man ekki eftir þessu :op
ég man samt eftir því að einu sinni þegar jólasveinninn gaf mér kartöflu í skóinn, fylgdu rúsínur í sárabætur ;) jólasveinninn hefur verið orðinn e-ð linur ;)
Skrifa ummæli