föstudagur, desember 08, 2006

Litli hrakfallabálkurinn

Vorum í heimsókn í dag, voða gaman Hildur að leika við Óskar Mána vin sinn og einn tveir og tíu datt á borðstofuborð og "braut" aðra framtönnina í sér:( Slysin gera sko ekki boð á undan sér... Hún er því með svona "krúkket teeths" þessa stundina. Tönnin keyrðist alveg inn þannig hún er núna með skakka tönn sem verður víst brún með tímanum. Ég er með heavy móral en það þýðir víst lítið að hugsa þannig. Ætli hún læri nokkuð af þessu? Vona það samt... Samt mjög fegin að þetta var bara tönnin en ekki litla andlitið.

Sem sagt enn einn dagur þar sem lítið var lært en dúllan þeim mun meira knúsuð...

Adios... Lisa

17 dagar til jóla...

Comments:
Æj, nei! Þetta var nú ekki skemmtilegt :(

Kerla.
 
Ae greyid! En eins og thu segir gott ad thetta var bara tonn en ekki andlitid.
Eg var nu lika med bruna tonn a sinum tima.

Knus fra Boliviu :)
Runa
 
hvað segirðu?! gleymdir alveg að segja mér þetta þegar ég talaði við þig í símann síðast... hmm...

en, æji, já, svona kemur víst fyrir litla prílara

kv Tóta
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?