mánudagur, desember 04, 2006

Prófstress

Skrítið með börnin mín, þau umturnast alltaf í prófum. Held að það þurfi ekkert frekari sannanir við... ég bý til stress mjólk:(

Bjarki er búinn að ákveða að vaka öll kvöld og hafa partý á nóttunni. Þetta þýðir að ég er að skríða á lappir um hádegisbilið og úff próflestrartíminn af annsi skornum skammti.

Best að fara bara í þessi blessuð próf með hugarfarið þetta reddast...

Og aldrei að vita nema þetta reddist bara:)

Kv. Ljósálfurinn

20 dagar til jóla....

Comments:
stress mjólk já... hvernig ætli hún sé? ætli hún gutli meira í maganum á Bjarka... eða ætli hún innihaldi aukaskamt af adrenalíni sem fær hjartað hans til að slá örar... eða ætli hún sé öðruvísi á bragðið...?
 
vúps...

þetta var ég áðan
 
Svo þú hefur þá flúið í netheima Lísa mín! Eða hefurðu breytt símanúmerinu þínu? Gott að vita að þú ert enn í gangi. A.m.k. eftir hádegi :)

Kerla
 
heimasíminn hennar Lísu er e-ð bilaður... ef þú hefur verið að reyna að hringja í hana...
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?