þriðjudagur, febrúar 20, 2007
Þegar börnin fara að kenna manni
Hildur vill ekki borða kjötið sitt
"Fátæku börnin í Afríku fá ekkert kjöt og eru svöng "
"Ég veit" segir svo með spurnarsvip "mannst ekki við gáfum þeim pening?!" Brosir sæl yfir þessu og vill ekkert frekar borða matinn sinn...
............ Fróðleikur dagsins: Börn eru með stálminni og mig vantar nýjan leiðavísi með dóttur minni.
PS. Eftir 40,5 stiga hita í gær er mín hitalaus og búin að sofa of mikið í dag þannig að eitthvað verður erfitt að koma þeirri stuttu í háttinn


