mánudagur, febrúar 26, 2007
Rapport
Bjarki litli er ósköp lasinn en heldur sinni léttu lund samt nokkurn veginn. Er eiginlega bara erfiður á nóttunni en þá er sofið í ca. 20-30 mín á milli þess sem sárt er grátið, greyið. Samkvæmt doktornum er þetta líklega inflúensan sem Hildur var með.
Fengum annars góðar heimsóknir í dag... Bjarki var svaka hrifinn af Urði sem þótti hann þó full ágengur;) Óðinn lék líka helling við Bjarka sem var alveg svakalega feginn að sjá fleiri andlit en móður sína. Alveg svakalega velheppnuð eintök börnin hennar Esterar:)
Bjarki er líka mjög skotinn í Önnu Maríu vinkonu og hafði alls engan tíma til að borða í hádeginu fyrir henni;)
Þar til seinna
Adios
Lísa

