föstudagur, mars 30, 2007

Í Fréttum er þetta helst

Jæja ég lifði það af að verða tuttugu&tíu;) Góður dagur, gaman að fá fullt af kveðjum og gjöfum og nokkrir duttu inn í tilefni dagsins. Takk fyrir mig.
Einhver mótþrói í mér að viðurkenna aldurinn fyrir sjálfri mér svo það var tekin meðvituð ákvörðun að bjóða ekki í týpískt afmæliskaffi. Skellti samt í nokkrar kökur og viti menn það er bara ekkert svo mikið eftir sem er vel. Á samt von á einhverjum um helgina þannig að ég hef afsökun til að fá mér meira af franskri súkkulaðiköku svo ég geti bakað nýja;)

Af gormunum mínum er að það frétt að ég gafst upp á að vera með Bjarka lyfjalausan. Fékk nýtt pensillin fyrir hann sem ég vona að fari betur í kútinn.

Hildur Ósk var aðeins of rausnarleg við bróður sinn í dag. Hún ákvað að gefa honum með sér af sínu dýrmæta tyggjói. Tyggjó er munaðarvara á heimilinu sem sést sjaldan nefnilega... Mín ætlaði sem sagt að gera rosalega vel við litla bróður og stakk upp í hann, án þess að ég sæi til, helmingnum af tyggjóinu sínu (tuggnu úff hrollur) Sem betur fer stóð góðmennskukastið stutt yfir, því hún sá strax eftir gersemunum og rak upp kvein. Ég skyldi ekkert í því að drengurinn var með sælubros og hún gerði sig líklega til að troða allri hendinni upp í hann. Með snörum handtökum tókst mér að taka tyggjóið út úr Bjarka áður en það rataði niður í kok með tilheyrandi skelfilegum afleiðingum. Bjarki grét yfir því að missa þessa bragðgóðu tuggu og Hildur grét Krókudílatárum yfir því að tyggjóið fékk að fara á vit feðra sinna enda móðirin að reyna að kenna þeirri stuttu að maður gefur ekki litla bróður tyggjóið sitt...
Tvö grátandi börn :mikið eiga þau "vonda" móður;)

Kveð í bili

Comments:
hahaha

...lífið er erfitt stundum!

kv. Ester
 
Oh ég er farin að hlakka rosalega mikið til að sjá ykkur!
Langar líka að tala við þig skvís... skype annað kvöld?
 
Hæ skvís, er að fara að djamma í kvöld:) tuttugu&tíuára afmæli hjá Laufey.... Til í skype annað kveld í staðin
Lísan
 
Jam... þessvegna sagði ég annað kveld ;)
Góða skemmtun mín kjöra!
Heyrumst á morgun, mundu að ég er núna 2 klst á undan þér.
 
Til hamingju með afmælið Lísa:) Bara búin að ná honum bróður mínum! hehe:P
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?