mánudagur, febrúar 12, 2007

Kúturinn



Litli broskallinn minn er víst með í eyrunum... Það útskýrir óværðina sem gat nú líka verið út af kvefinu. Sefur stutt í einu en er ótrúlega góður.

Svo er hann byrjaður í aðlögun, Drífa sem passaði Hildi verður með hann þannig að ég veit að hann verður í mjög góðum höndum:)

Hildur virðist aðeins meira abbó þessa dagana, held að það tengist því að ég hef þurft að hafa meira fyrir Bjarka en venjulega.

Jæja nú verður eitthvað fréttnæmt að fara að gerast í mínu lífi svo fólk nenni að lesa bloggið mitt.

Sendi annars knús og kossa frá Hildi Ósk og Bjarka Frey til allra "ammanna", afanna og Rúnu heimshornaflakkara:)


Comments:
Bíddu ekkert knús til mín ?!
 
Sorry sorry elskan... Auka knús þú varst eiginlega bara inn í afa og ömmuknúsinu áðan:)

lísa
 
takk, takk fyrir knusin, stort knus til baka til litla broskallsins og storu systur.
Sigga amma
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?